Ruglið hennar Mínu :D
�?�?�?¾A�?�?�? ERU EINUNGIS
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 724 dögum
23ja ára
05.04.2008 00:30:31 / safi

LoS CryPlos

28.mars á afmælisdaginn sjálfan þá var Heiðrún vinkona mín svo góð að gefa mér nýtt nafn LoS CryPlos, daginn eftir gaf ég henni nafnið LoS SleFós þar sem að hún var búin að fletja út snúðadegið og setja kanil og púðursykur ofaná það bætti hún smá slefi við8|! Næst skalltu hafa lokaðan munnin og ekki verða að slefa oní matinn þó svo að þetta sé góður matur, viljum enga Hómer takta við þetta.
Pólverjanir voru svo góðir að hlæja af mér þar sem að ég var að skrönglast yfir snjóskaflinn á mínum fallegu hækjum sem sukku hér og þar oní skaflinn:evil: en mér tókst samt að fara yfir skaflana án þess að verða fyrir skakkaföllum, guðs lifandi fegin því að eyðileggja ekki viðgerðina sem ég fékk 27.janúar. Tekur ansi langan tíma að jafna sig komnar rúmar 11 vikur frá því að ökklinn brotnaði að ég held. Slatti hölt og stirð en þetta kemur allt saman, fæ að vita í næstu viku hvort að ég þarf að fara í sjúkraþjálfun því að ekki get ég hreyft ökklan mikið.
Langar óstjórnlega mikið að fara aftur í vinnuna og gera eitthvað af viti, ekkert vit í því að hangsa heima og lesa bækur og vafra á netinu eða leika sér í tölvuleikjum.

Skrapp til Berglindar á fimmtudaginn, hún "öfundaði"mig svo mikið á því að vera hreyfiheft að hún datt í stiganum heima hjá sér og fór held ég hálf úr liðnum ekki gott en það jafnar sig vonandi fljótt. Ásdís Vala stækkar og stækkar og verður alltaf meira og meira krútt. Fannst mest krúttlegt þegar að hún sat á gólfinu með flugvéla(bílinn) og hreyfillinn var í gangi og hún byrjar að hrista hausinn fram og til baka man ekki eftir að hafa séð svona lítið barn gera þetta en vá hvað hún er mikil rúsína svo sæt. 

Svo í ágúst þá er stefnan tekin á kanaríeyjar-fuertventura 2 vikur. Fer með Diddu og Bubbu. Þetta verður feiknar fjör.

Veit ekki hvað ég ætti að babla meira.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 20:11:43 / safi

Jámms

Einhverjar breytingar hafa orðið hérna inni þó nokkuð flott verð ég að segja. Kannski nota ég bara bæði bloggin.

Jamms en allavegna fyrir þá sem ekki vita þá var ég svo brjálæðislega mikill snillingur að ég datt 27.janúar svo illa að ég braut á mér ökklan mjög slæmt brot. Læknirinn segjir að ég fái kannski göngugipsi 5.mars en honum fannst það ekki mjög líklegt.
En ég er nú bara búin að vera dugleg að hafa fótinn hátt uppi og vera sem minnst á ferðinni sem að gegnur bara þokkalega vel 8). Samt búin að detta næstum því 4 x en alltaf náð að standa :lol: sem betur fer. Hef þetta ekki lengra. Getið séð röntgenmyndir inná www.blondie.bloggar.is.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 12:45:34 / safi

TILFÆRSLA

Það er orðið alltof oft sem að maður getur ekki kommentað á þessa síðu þannig að ég færi mig yfir á www.blondie.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 18:39:44 / safi

Set to failure!

Held að það sé stefnan sem að ég er á þó svo að það sé ekki ætluninn. Gengur allt á afturfótunum einhvernvegin veit ekki afhverju! En ætli þetta lagist ekki allt þegar að það verður komin regla á draslið í vinnunni eftir jólin, já það er ennþá allt á öðrum endanum en samt mun skárra núna heldur en í síðustu viku. Svo þegar að ég verð komin í gegnum þennan stafla af þvotti sem Benni litli bró er búin að búa til á einni viku! Hvernig er þetta hægt að fylla heila þvottaköfru af handklæðum og heila körfu af fötum, þetta eru 2 stórar körfur og þær eru FULLAR! Kannski er þetta svona af því að ég hef ekki sett í eina einustu þvottavél síðan að mamma fór út??? :$
Erfitt að fara að vera duglegur að þvo og þrífa þegar að maður hefur ekki þurft að gera handtak í þó nokkuð langan tíma :$ Japp tek ekki reglulega til hérna heima þar sem að ég sé ekki um að drasla til venjulega í eldhúsinu og stofunni. Hef hingað til bara hugsað um herbergið mitt :$ Ekki nógu dugleg.

Hvað er eilla málið með allan þennan snjó??? Var í 10 mín að skafa ALLAN bílinn 10-15 cm snjór á honum. Svo þarf maður að massa sér inní stæðinn til að geta lagt honum, þarf öruglega að sýna snilldar takta á morgun til að koma honum útúr stæðinu. Ég var þraul æfð í því þegar að ég bjó á Kársnesbrautinni. Það var brjálað gaman að losa bílinn þar:haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 22:36:40 / safi

blog blog blog blog

Jahá hafði það bara rólegt um áramótin, var farinn að sofa um hva hálf 3 eða 4 man ekki hvort það var ég var allavegana að leka niður úr þreytu. Annars er nú ekki mikið að frétta af mér. Bara alltaf að vinna og vinna og heimsækja vini og hanga heima og taka til og ,,passa" litla bró. Ne það getur varla flokkast undir það að passa hann, þar sem að hann er að verða 16 ára eftir nokkra daga.
Mamma og Bragi eru útá Kanarí og koma aftur heim 30. jan.

Svo styttist árlega þorrablótið sem er nánst skyldu ferð og ætla nokkra vinkonur mínar úr vinnunni að koma með:D þetta verður gaman.

En ja veit ekki hvað ég á að segja meira. Elísa vildi endilega blog og hér er það. Ég er bara að bíða eftir að blog gáttir mínar opnist og blogið flæði hér um, en þangað til næst bið ég ykkur vel að lifa :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 13:32:10 / safi

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!

ÞAKKA FYRIR ALLT GAMALT OG GOTT.

ÓSKA YKKUR FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 22:06:15 / safi

GLEÐILEG JÓL!!!!

Gleðileg jól allir saman og vondandi hafið þið það sem allra best. 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 19:27:49 / safi

hummmmmmm

Jamm var búin að skrifa heví færslu hérna um daginn en helvítisbloggið virkaði var alltaf skráning á færslu tókst en ekkert kom samst sem áður :(man ekki einusinni um hvað færslan var.

Allt brjálað í vinnunni allvegana er ég í brjáluð og ef þessu verður ekki kippt í liðinn fyrir jól þá getur þetta lið troðið skyri uppí rass****** á sér!!!!!!!!!!!!!

Er samt geggjað ánægð því að allt annað gegnur svo vel og svo er stutt í að Heiðrún pæja komi aftur heim, hlakkar svo til að sýna henni "supplæsið" :hihi: (búin að gera þig geggjað forvitna, þér dettur aldrei í hug hvað surprice hluturinn er múhahahahahhaahahah)

Fólk finnst voða gaman að keyra á bílinn minn og er búið að keyra á hann 2x og á sama stað í bæði skiptin nema smá hæða munur á beyglunum og rispunum!!! Ljóta fólk sem er svo öfundsjúkt útí svona fallegan bíl að það þarf að skemmileggjann :frown: þarf að ath hvort að tryggingafélagið sé búið að fá skýrslurnar!!!!!  já það liðu nú held ég rétt um 2 eða 3 vikur á milli þessa atvika. Fyrraskiptið hefur eitthver verið að bakka og keyrt utaní hann og í seinna skiptið var ég á leiðinni í vinnuna þegar að e-r dúddi eða kelling ákvað bara að beygja og keyra utna í mig hætti svo við að fara inná þessa akrein af því að hann/hún var náttla búin að keyra á mig og keyrði þá bara beint áfram og í burtu!!!! Helv. ljóta fólk lærðið kurteisi og skemmið ekki annaramanna hluti!

Já svo var ég að kíkja á veggin bakvið rúmmið málninginn búin að bólgna enn meira út, íbúðin lekur einsog hún fái borgað fyrir það. Bíð eftir því að ég vakni við það að panellinn detti ofaná mig (panell er spýtuklæðnig í loftinu eða ekkað álíka).

Já en segi þetta gott af gremju og tilhlökkun í bili.

bey


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 22:34:30 / safi

Árshátíð Hagkaupa 2007

Já nú er árshátíðinn afstaðinn og gekk hún frábærlega:)

Vaknaði rétt fyrir 11 á laugardagsmorguninn lét renna í bað skellit mér í bað tók tæpar 10 mín að snyrta það sem að snyrta þurfti.  Þurrkað sér skellt sér í föt og beinustu leið útí bíl að leita að aribrush stofu eitthversstaðar í Hafnarfirðinum fann hana á endanum og var þar í klukkutíma make upið komin á sinn stað engar áhyggjur af því, þegar að ég var búin þá hitti ég Diddu og Bubbu þær komu á eftir mér og Didda minnti mig á blöðrunar SHIT þær komast sko ekki í bílinn minn hann fullur af dekkjum og söluvöru :$ Þannig að ég þurfti að bíða eftir þeim. Skutlaði Bubbu heim að ná í annan bíl til að geta sótt blöðrunar og brunað með þær uppí hagkaup. Hlupum útum allt, fórum og skelltum í okkur einni pylsu, fokk klukkan orðin 3 þurftum að drífa okkur heim og ná í drasl heim til okkar og bruna niðrá Brodway í general prufu sem tókst mjög vel strax eftir hana var brunað heim og skiptum föt á met hraða og maskarinn lagaður! Þá var brunað nirðrí hagkaup og keypt 3 nauðsynjar og allt fixað upp. Þá byrjaði drykkjan humm hefði átt að hugsa útí það að ég væri búin að borða nánast ekki neitt þannig að ég varð kennd frekar fljót :hihi: En allt í kay með það. Svo var hópast útí rútu með gull blöðrur og sprota;) Enda fólkið sem vinnur í Kringlunni bara gull af mönnum 8).
Mikið stress og mikil drykkja þegar að þangað var komið allavegan hjá mér. ÚFF þá rann studninn upp kölluð nirðí búningsherbergi til að skipta um föt og gera okkur klár á svið úff alltof mikið af áfegnistegundum bjóst við því að það kæmi allt upp þegar að ég færi að sprikkla upp á sviði neinei mér tókst að fara í gegnum þetta hasar atriði hihihi og vá klappið sem kom á eftir:haha: Stóðum okkur frábærlega þó ég segi sjálf frá.

Gerði ýmsan skandal og nefni ég hann ekki hér hihihi þið verið bara að fá að heyra það frá mér í eigin persónu nema kannski Heiðrún Manhattan gella :D

Hafði það bara fínt á sunnudeginum smá þynnka í gangi en nei viti menn þegar að ég vakna í morgun kominn með 39°stiga hita vissi að ég hefði ekki átt að labba frá hressó langleiðina niðrá Bsí í skíta kulda og roki. Vonast til að komast í vinnuna á morgun og heyra fullt af sögum hihi

Hitafíflið kveður:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 13:43:28 / safi

Stelpur þið kannist við þetta.....

Held að það séu ófáar stelpunar sem kannast ekki við það þegar að strákar reyna og reyna. Hvað þá þegar að þeir eru alltaf að spyrja hvort þeir meigi koma með manni heim og kúra, hvenær ætlaru að segja já og spyrja aftur og aftur sama kvöldið!!
Bara svo þið fattið þetta strákar þá heillar þetta okkur kvennmennina ekki neitt. Þetta þykir frekar pirrandi og gefur augaleið að þið séuð orðnir frekar desperate.
Þið ættuð frekar að spjalla við hana um daginn og veginn eða eitthvað annað og kynnast henni og hver veit kannski vaknar áhugi hjá stelpunni.
Ég veit allavegan að þegar að þið strákanir byrjið á því að væla um það hvenær þið megið koma með mér heim eða þegar að þið farið að spyrja hvað mér líki best í kynlífinu og koma með eitthverjar klámfengnar athugasemdir hér og þar þá skuluð þið muna það að ég fer algjörlega í baklás og hef bara engann áhuga á því sem að þið eruð að segja, langar helst til að gefa ykkur einn á´ann fyrir að vera svoddan ruddar.

 

Stelpur endilega kommenta ef þið kannsit eitthvað við þetta 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 14:35:07 / safi

Andskotans ljóta fólk sem...........

Já titillinn hérna að ofan á vel við því ég er bál ill. Ég hata fólk sem keyrir á bíla og stingur svo af!!!!!!!!!!!!!!!! SVO ÞÚ SEM KEYRÐIR Á BÍLINN MINN OG STAKKST AF VONANDI DEYRÐU OG ROTNAR Í HELVÍTI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!. Föstudagurinn var ekki minn happa dagur :evil: byrja á því að sofa yfir mig, svo er eitthver ljótur klappstóll uppí vinnu sem var ekki mikið traust vekjandi, allavegan leit ekki út fyrir að vera það þegar að maður tók eitthvað í hann og hrissti hann til en lét mig hafa það að setjast í hann en neiiii ég hætti ekkert að setjast fyrren ég var kominn í gólfið og grenjaði úr hlátri :lol: svo þegar að ég var að reyna að hætta að hlæja þá byrjaði Didda alltaf aftur að hlæja þetta var mjög fyndið, en var samt ekki eins gott fyrir bakið en meiddi mig samt ekkert brjálæðislega. Svo fór ég að sækja vörur sem að ég hafði pantað niðrá Vöruhótel og þegar að ég er búin að sækja það dót og er að fara að henda því í aftur sætið þá tek ég eftir því að einhver helvítis hálfviti hefur keyrt á bílinn minn og stungið af!!!!!!!!!!!!!.
Fólk sem gerir svona á að skammast sín!!!!! Maður gerir ekki svona hugsið ykkur ef þetta kæmi fyrir ykkur??? Held að þið yrðuð jafn reið og brjáluð!!!! Manneskjan var bara heppin að ég sá hana ekki gera þetta ég hefði barið hana ég hefði orðið svo reið! Nýji bíllinn minn. Vona bara að löggan finni þann sem að gerði þetta. Sárt að þurfa að borga eitthverja sjálfsábyrgð þegar að þetta er ekki einu sinni manni sjálfum að kenna, sér í lagi þegar að maður vandar sig alltaf við að leggja í stæði.
Jæja nóg um þetta. Farinn að gera eitthvað af viti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 12:57:37 / safi

........................

 

Ekki mikið að frétta af mér. Fer voða lítið á djammið einsog vanalega, ennþá minna þar sem að Heiðrún litli djammfíkill er útí USA Manhattan að spóka sig þangað til í desember.
Elísa hringdi í gær í mig komin tími til að við færum að hringja í hvor aðra, verður vonandi fljótlega hittingur hjá okkur.
Annars er eilla ekki neitt á könnunni hjá mér þessa dagana. Jújú ætli við förum ekki að æfa árshátíðaratriðið fljótlega það verður geggjað gaman :D

Bogga og Jói skírðu í gær litla prinsinn sinn og fékk hann fallega nafnið Patrekur Trausti. Hann er algjört krútt :);)

hef þetta ekki lengra í bili. ta ta


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:22:56 / safi

Jæja lestur mikil skal hefjast nú! HEHEHE

home sweet home.Já held að það sé komin tími á blogg um þessa ferð mína til Búlgaríu og það sem að gerðist á eftir því. J Komum til Búlgaríu 16 júlí um 4 leytið. Röltum um svæðið og fengum okkur að borða, ég pantaði mér kjúklinga snitssel, Halla og Svanhildur eitthvað annað man ekki hvað það var og Boggi pantaði sér  svína snitsel, svo kom maturinn sem þær pöntuðu sér svo kom snitsel og ég jámm þetta er mitt, en nei svo kom maturinn til Bogga og hann alveg Jónína þú ert að borða svína snitselið mitt! Ég alveg ???? ó ég hélt að ég væri að borða kjúkling hehehe. Þannig að ég var orðin matarþjófur strax fyrsta kvöldið hehe.Kíktum 2x á ströndina, þegar að við fórum í fyrsta skiptið þangað þá fékk ég strax viðurnefnið Drama Queen mér til mikillar ánægju eða þannig, hey mér fannst ógeðslegt að finna fyrir einhverju strjúkast við fæturna gat verið eitthvað ógeðslegt. Í seinna skiptið þá vorum við að svamla um í sjónum á vindsængum geggjað fjör, fór svo og prufaði jet sky en nei brjálæðingurinn ég þorði ekki að keyra hratt þar sem að það voru marglittur þarna í milljóna tölu bæði þær sem að eru ekki eitraðar og þær sem að eru eitraðar. Mig langaði ekki að prufa að lenda í þeim. Plús það að ég týndi höfninni minn L ekki gaman leið einsog hálfvita að fara úr höfn í höfn þangað til að það kom einhver strákur og sýndi mér hvar höfnin mín væri. Hehehe.Skruppum einn daginn inní Varna og fórum verslunargötuna þar, keypti fullt af kjólum á litlu frænku mína hana Elísabetu og svo á Ásdísi Völu. Komum við á Mc. Donalds. og þar var Svanhildur rænd en þeir höfðu ekkert uppúr þeim þjófnaðinum þar sem að þeir náðu einungis íslenskum peningum.          Skelltum okkur svo í jeppasafarí. Það var geggjað gaman, stríð á milli bíla þar sem að maður var að skvetta vatni yfir hina, fyrir utan það að ég mesti klaufi í heimi hellti í eittskiptið öllu yfir sjálfan mig humm. Fengum að smakka þjóðardrykkinn þeirra rahkía, einn í hópnum sagði að þetta væri bara einsog íslenskst brennivín þannig að ég skellti þessu í mig og var fljót að garga á fantað mitt, shit hvað þetta var sterkt og vont blómabragð af þessu, heima bruggaður andskoti. Fegnum saltat og kjúkling að éta. Mikið helgið og skemmt sér yfir þeim matnum.          Skruppum til Albena sem er lítill ferðamanna bær skammt frá Golden Sands. Leigðum okkur tveggja manna rafmagns körfu hjól það var bara geggjað hehehe þurftum samt að restarta því nokkrum sinnum því ef maður flautaði og mikið þá drap það á sér :$.          Fórum í ferð í garð rúmensku drottningarinnar, geggjað flottur garður rétt við sjóinn með frábært útsýni. Þar var farið í vín smökkun, þar byrjaði Boggi að drekka, þegar að skoðunar ferðin var búin þar fórum við til Balchik eða eitthvað man ekki hvað staðurinn hét eða vissi það aldrei. Þar hittum við mann sem er alveg einsog Boris Jeltsín. Hann og Boggi urðu bestu vinir hehe, Boris tókst að láta Bogga kaupa einhvern forljótan kertastjaka. Boggi var náttla búin að drekka heilana  helling, það sem við fengum í drottningar garðinum og eina og hálfa hvítvíns flösku. Þegar að við komum aftur á Golden Sands þá hélt Boggi áfram að drekka á meðan við stelpurnar fórum og lögðum okkur. Þegar að við vöknum aftur þá er Boggi komin aftur uppá hótel og situr við sundlaugar barinn og er enn að drekka og hann hélt áfram að drekka þangað til að klukkan var farinn að ganga 12 eða eitt og þá fórum við að draga hann heim og það gekk misvel en svo þegar að Svanhildur fór að draga bróður sinn áfram þá snérist það allt í einu við og hann dró hana. Hún gargaði á okkur og bað okkur um að hjálpa sér en nei ég og Halla dóum bara úr hlátri þetta var svo fyndið, hún einsog pínulítil mörgæs í eftir dragi hahahahahehheehehe.            Fórum á Búlgarskt kvöld þar sem að við fengum hlaðborð að allskonar mat og því líkt flottar sýningar.           Siglingar, já við fórum í tvennskonar siglingar, partý siglingu sem við fegnum frítt útaf einhver fífl borguðu meira fyrir að fara í 7 tíma siglingu og fá að vera einir!!! Ljótu hálfvitarnir þeir langaði að fara og öskra á þá en nei gerið það ekki það var þá sem að við fórum bara á ströndina og ég brann eftir að hafa verið á jet skyinu ekki þægilegt.           Fórum út að borða á hverju einast kvöldi og skellt í sig drykkjum á þessum 2 vikum hef ég örugglega rétt náð því að eyða jafn miklu og maður eyðir á einu föstudags eða laugardags kveldi. Var 2x þunn, bara smá í eitt skiptið en í hitt skiptið þá var ég að DEYJA. Koktailar drukknir í massa vís og sérstaklega sex on the beach eða pinacolada og vodka and red bull jammí, oft farið á karókí bari hehehe og auðvitað þar sem að sæti barþjóninn var og svo þar sem að uppá halds barþjóninn minn var hann Petar, fékk gommu af koktailum og staupum gefins :P þetta var bara stuð.           ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM!!Já fór til eyja 1. ágúst. og það var geggjað gaman fyrir utan það að tjaldið okkar fauk og lenti á snúru og rifnaði L En ég og Heiða gistum bara inní húsi sem var bara fínt. Þurí var svo góð að hýsa okkur í 3 nætur og Bróðir hennar Skúli líka. Mikið drukkið og skemmt sér. Hahaha einn morguninn þegar að ég var ný komin heim þá kemur Gummi heim (einn af hinum árlegu þjóhátíðar gestur sem kemur alltaf til Skúla) og eitthver búin að stela herberginu hans og hann geggjað fúll og við förum inní eldhús og ætlum að hita okkur kjötsúpu í örbylgjuofninum sem er ekki frá sögu færandi en nei hann hendir disknum sínum inní ofninn og stillir hann eftir smá stund tékkum við á henni og hún enn köld og eftir smá stund þá gefumst við bara upp og borðum súpuna bara kalda. Daginn eftir segjum við Skúla að þetta sé nú meiri ofninn hann kæli bara en hitar ekki, nei nei við gleymdum að ýta á START!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! svo gamall var þessi ofn að það var start takki á honum humm heheh. Svo gerðist ég svo fræg að vera hugguð af  Jónsa í svörtum fötum. Já eitthvað fífl þarna eyðilagði NEMÓ fallega gúmmí fiskinn sem ég keypti útí Búlgaríu á skít og kanil og mín sem var búin að drekka hálfa vodkaflösku og heilan tópas pela og ca 10 bjóra var sko ekki ánægð og horfði á greijði fiskinn og fór bara að grenja og veit ekki af neinu fyrr en það er tekið utanum mig og talað um að það eigi eftir að koma bjartari dagar og einhvað man ekkert hvað það var og ég leit eitthvað til hliðar til að sjá hver þetta var þá var þetta bara hann Jónsi og ég held bara áfram að grenja og segi NEMÓ ónýtur hhahahah einsog einhver fukking 5 ára krakki en það er bara fyndið af hugsa um þetta. En þetta var geggjuð þjóhátíð. Blogga meira seinna þetta er orðið huge mikið.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 16:08:49 / safi

hitit og meirir hiti

jamm aetladi bara ad lata heyra sma i mer. hef tad fint reyndar ad deyja ur tynku. bartjoninn einum of godur vid mig og gaf mer fleirir og fleiri staup :) en jamm eg skrifa meira um ferdina tegar ad eg kem heim og verd med almennilegt lyklabord. kem a manudagskvold

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 01:14:05 / safi

Hringferðar og Bátsferðar pistill :P

 

Föstudagur:            
Byrjaði á því að fara í sund um morguninn og synti hálfan kílómeter (Sama og ég geri á nánast hverjum einasta virka degi) Fór í vinnuna og kláraði að vinna á milli 5 og 6 þá var brunað heim og pakkað niður. Sótti Heiðrúnu og Elísu, þá var brunað í Bónus og keypt það sem vantaði. Komum við í Skalla í Árbænum og skelltum í okkur einum borgara eftir hann var brunað vestur á Snæfellsnes á Arnarstapa okkur leist ekkert á tjaldsvæðið snérum við og brunuðum útá Stykkishólm og tjölduðum þar. Skruppum á barin og fengum okkur smá öllara. Nei haldiði ekki að mín komist á séns GREAT EÐA HITTÓ. Eldgamall kall komin yfir sextugt!!!! NEI TAKK!!! Stelpurnar skemmtu sér mjög vel yfir þessu, ekki ég. Nei nei svo er þetta eitthver svaka milli ný búin að kaupa eða selja eitthvað fiski drasl og á einhverjar 200 milljónir!!!!! En hey ég vil ekki einhverja ELD gamla karla og því síður að ég sé að sækjast eftir peningum. Já stelpur veit alveg að ég vil hafa þá örlítið eldri en ég en hey jó vó nei ekki meira en 14 árum eldri en ég. Stelpurnar lentu á talið við annan mann þarna sem gaf okkur síðan frímiða í sund.
Laugardagur :         
 Fórum á fætur eitthvað um 2 leytið og skelltum okkur í sund, nýttum frímiðana okkar :D Synti minn hálfa kílómeter og láum svo í pollinum í smá stund. Ákváðum svo að pakka niður tjaldinu og bruna á Akureyri. Keyrðum Álftafjörðinn og þar í gegn eitthversstaðar og vorum komnar á Akureyri eitthvað um 11 um kveldið. Tjölduðum og fórum og hittum Sigga hennar Elísu. Hann skellti sér svo með okkur niðrí bæ. Settumst á bekkina fyrir utan Kaffi Amor til að klára áfengið sem að við tókum með okkur, turtildúfunar tóku sér smá göngutúr á meðan ég og Heiðrún skelltum í okkur áfenginu :P Þá komu 3 myndar piltar og settust hjá okkur og aftur lenti maður á séns en nei Heiðrún hrakti þá í burtu af því að HENNI fannst þeir of ungir. Fórum inná Amor en eftir smá fórum við inná Kaffi Akureyrir og það var heljarinnar stuð þar og vá hvað dyravörðurinn var líkur Ólafi. Hann var alveg einsog hann nema aðeins hærri og rauðhærður en vá ef ég hefði verið meira drukkin þá hefði verið pínu séns á að ég hefði ruglast og spurt hann hvað hann væri að gera sem dyravörður á Kaffi Akureyri hahahahaha. Röltum síðan heim upp þessa brjáluðu brekku þegar að við höfðum djammað af okkur rassgatið.

 Sunnudagur:
Vöknuðum eitthvað uppúr 12 eða 1 og grilluðum okkur pylsur. Elísa var mjög sniðug og gaf helvítis mávunum smá pylsu bita!!! Næstu gestir verða ekki ánægðir hummm. Pökkuðum síðan tjaldinu niður og ákváðum að bruna á Egilsstaði. Stoppuðum og skoðuðum Goðafoss, keyrðum að Mývatni og löbbuðum litla hring í Dimmuborgum. Komum á Egilsstaði eitthvað um 10 að ég held. Tjölduðum og fórum og fegnum okkur að éta á Hamborgarabúllunni. Rúntuðum smá um þetta skrítna place og fórum svo á tjaldsvæðið og ætluðum að fara að byrja að drekka þegar að við vorum að tala um hvað þetta væri ömurlegt tjaldsvæði eða alla veganna ekki við okkar hæfi, þá var tekin skyndi ákvörðun tjaldinu og draslinu pakkað niður á núll komma einni og hent inní bíl og brunað í Atlavík og tjaldað aftur og loft sett aftur í dýnurnar. Fengum okkur bjór og spjölluðum saman, röltum niðrað vatninu og fórum að fleyta kellingar. Eitthvað hefur hún Heiðrún tekið á við það því hún var nánast handlama daginn eftir. Fórum aðeins á leikvöllinn og Elísa fór að róla sér til skemmtunar, þær reyndu síðan að vegasalt en eitthvað gekk það illa þannig að við löbbuðum aftur uppí tjald til að fara í háttinn. Þar reyndi ég að fara ofaní svefnpokann minn einsog eitthver snillingur ekki gekk það nú betur en það að ég festi mig og þurfti að vesenast við það að losa rennilásinn einhvernvegin það tókst á endanum og þá var nú orðið vel hlýtt og notalegt í tjaldinu hehe. Sváfum mjög vel.
Mánudagur:          
Vöknuðum eitthvað um 12 held ég og byrjuðum að elda. (Elísa vaknaði fyrr og opnaði helvítis tjaldið til að gestir og gangandi gætu séð myglaða fólkið þar inni
L ) Tókum síðan saman okkar hafurstaks og brunuðum af stað á Djúpavog stoppuðum mjög stutt þar og þá var brunað á Höfn og stoppað þar og kíkt á Gísellu ömmu hennar Heiðrúnar og fengið sér í gogginn. Lögðum að stað frá Höfn um 6 og brunuðum á Klaustur. Fengum næstum hjartaáfall á leiðinni, sáum konu í göngutúr með hundinn sinn, mér fannst hundurinn eitthvað svo kjánalegur í hegðun að ég hægði vel á mér sem betur fer enda hljóp hundurinn útá götu en nei fíflið á jeppanum fyrir aftan mig var ekkert að pæla í ástæðunni fyrir því að ég hægði skyndilega á mér og fer frammúr og það munaði bara hársbreidd á því að hann æki yfir hundinn. Hjartað fór á milljón en sem betur fer slapp litli vitleysingurinn. Héldum áfram og stoppuðu hjá Jökulsárlóni til að kíkja á ísjakana. Héldum áfram stoppuðum og gerðum vörður, pissu stopp á Klaustri, vasa stopp fyrir Heiðrúnu á elliheimilin í Vík og stoppuðum smá heima hjá henni líka. Brunað á Selfoss stoppað þar í smá stund og myndir helgarinnar skoðaðar þar sem að Elísa var komin á leiðar enda. Brunuðum við Heiðrún síðan í bæinn, skutlaði henni heim og hjálpaði henni með dótið upp þar sem að hún var handlama eftir allar þungu kellingarnar sem að hún grýtti í Lagarfljótið. Fór svo sjálf heim klukkan langt gengin í 2, þegar að á endastöð var komið þá var ÉG búin að keyra 1794 km síðan á föstudagskveldið.
Þriðjudagur:
Byrjaði á því að sofa allhressilega yfir mig og missti af sundinu, samt vel skiljanlegt því ég var vel þreytt eftir að hafa keyrt um 700 kílómetra á einum degi!!!! Fór í litun og klippingu. Boggi og Halla buðu mér í siglingu og ég þáði það og sé sko ekki eftir því :D Fór með Björgunarsveitinni Ársæli í siglinu og sigldum í ca 3 og hálfan tíma. Fór í litla gúmmítuðru á eftir bátnum og vorum að stökkva á öldunum geggjað gaman :D Fór aftur um borð í bátinn klæddi mig í blautbúning og stökk fyrir borð ofaní sjóinn GEGGJAÐ GAMAN nema sjórinn er ekki góður á bragðið og manni svíður í augun útaf saltinu. Stuttu eftir að ég var komin um borð aftur þá kom útkall, þannig að ég fór í smá útkall en það reddaðist vélstjórinn úr björgunarsveitinni lagaði vélina í bátnum hjá þeim og þeir komust aftur á stað. Svo var bara siglt í land og gegnið frá.           

 Já held að þetta sé ágætis ferða og sumarfrís pistill í bili :D

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
leikir
snúlli